Heimasíða Akureyrarbæjar

 

Velkomin á Akureyrarpúlsinn

 

Akureyri er í örum vexti og sífellt fleiri fyrirtæki eru staðsett eða stofnuð í bænum. Akureyrarpúlsinn auðveldar forsvarsmönnum fyrirtækja að nálgast upplýsingar um viðskiptaumhverfið á stærsta markaðssvæði landsins utan höfuðborgarsvæðisins.

 

Í samþykktri byggðaáætlun ríkisstjórnar Íslands fyrir árin 2006-2009 segir að sérstök áhersla verði lögð á gildi menntunar og menningar, aukna nýsköpunar- og atvinnuþróunarstarfsemi, bættar samgöngur og fjarskipti og styrkingu Akureyrar og annarra landshlutakjarna.

 

Öllum má því ljóst vera að framtíðin er fólgin í Akureyri.

 

Notið hnappana hér að ofan til að kynnast kostum þess að reka fyrirtæki í bænum og fræðast um viðskiptaumhverfið.